- Auglýsing -
- Auglýsing -

Mótum sjötta flokks drengja og stúlkna hnikað til

- Auglýsing -

Mótanefnd HSÍ hefur ákveðið að færa til 5. móti í 6.fl. yngri, bæði hjá drengjum og stúlkum. Til stóð að mótið færi fram helgina 13. – 15. maí en hefur nú verið fært til 20. – 22. maí.

Mótið fer fram á Akureyri í umsjón KA og Þórs. Jafnframt er búið að tímasetja mót í 6.ka&kv. eldri sem frestað var í nóvember vegna Covid-takmarkanna, það fer fram sömu helgi á Akureyri.

Ekki var hægt að halda bæði mótin helgina 13.-15. maí og var því gripið til þess að færa mótin aftur um eina viku, segir í tilkynningu HSÍ. Þar segir ennfremur:

Það verður því sannkölluð handboltaveisla fyrir alla iðkendur í 6.fl. á Akureyri í maí. Kjörið tækifæri til að ljúka keppnistímabilinu með frábærri ferð sem börnin gleyma seint.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -