- Auglýsing -
- Auglýsing -

Námskeið fyrir ritara og tímaverði

Dómarar og eftirlitsmenn verða að hafa ritara og tímaverði sér við hlið sem hafa allt á hreinu. Mynd /HSÍ
- Auglýsing -

Dómaranefnd stendur fyrir öðru námskeiði fyrir ritara og tímaverði mánudaginn 21. september kl. 18.00. Námskeiðið verður haldið í gegnum fjarfundarbúnað (MS teams) og geta þeir sem sækja námskeiðið fylgst með í tölvu, á spjaldtölvu eða í síma (við mælumst þó til þess að fólk noti tölvu).

Skráning er hafin og má finna hlekk á skráningu neðst í fréttinni, skráning stendur yfir til hádegis á mánudag en þá fá allir sem eru skráðir sendan hlekk á fundinn í tölvupósti.

Allir þeir sem munu starfa í Olís deildum karla eða kvenna, sem ritarar eða tímaverðir veturinn 2020-2021 þurfa að sækja námskeiðið sem líkur með prófi. Standast þarf prófið til að fá réttindi eða endurnýja þau.

Félög sem taka þátt í efstu deild mfl. karla og kvenna er skylt að hafa lágmark 4 starfsmenn, sem hafa tekið námskeið í ritara- og tímavörslu. Þessir starfsmenn ásamt virkum B og C-stigs dómurum eru þeir einu sem geta starfað sem ritarar- og tímaverðir í efstu deild meistaraflokks karla og kvenna. Félag skal tilnefna aðila til að sjá um að þessir starfsmenn þekki vel til verka og sé kynnt reglulega leiðbeiningar um störf þeirra.

Rétt er að benda á að próf ritara- og tímavarða gilda í 2 ár og skulu þeir því gangast undir námskeið og próf annað hvort ár. Þeir ritarar og tímaverðir sem tóku próf haustið 2019 þurfa því ekki að mæta en eldri námskeið/próf gilda ekki fyrir veturinn 2020-2021.

Reynir Stefánsson, formaður dómaranefndar HSÍ stýrir námskeiðinu.

Hér hægt að skrá sig.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -