- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ómar Ingi og Rut Arnfjörð eru handknattleiksfólk ársins

Samsett mynd/HSÍ
- Auglýsing -

Ómar Ingi Magnússon, 24 ára hægri skytta Madgeburg í Þýskalandi og A landsliðs karla, og Rut Arnfjörð Jónsdóttir, 31 árs hægri skytta KA/Þórs og fyrirliði A landsliðs kvenna eru handknattleiksfólk ársins valin af Handknattleikssambandi Íslands.


Ómar Ingi vann bæði Evrópudeildin og heimsmeistarakeppni félagsliða með Magdeburg á árinu en auk þess lenti liðið í 3. sæti í þýsku deildinni í vor. Hann varð markakóngur þýsku 1. deildarinnar með 274 mörk. Þegar þetta er skrifað er Magdeburg í efsta sæti þýsku deildarinnar og hefur ekki tapað leik á yfirstandandi tímabili hvort sem er heimafyrir eða í Evrópukeppni.

Byrjaði á Selfossi

Ómar kemur úr sterku yngri flokka starfi á Selfossi og spilaði með meistaraflokki bæði á Selfossi og með Val áður hann hélt í atvinnumennsku til Danmerkur. Þar lék hann með bæði Århus Håndbold og Aalborg Håndbold áður en hann flutti sig um set og hóf að leika með Magdeburg sumarið 2020.


Ómar hefur leikið 56 landsleiki og skorað í þeim 150 mörk.

„Það má segja að handknattleiksferill Ómars hafi sprungið út eftir að hann flutti sig um set til Þýskalands og hefur framganga hans vakið mikla athygli úti í heimi, Selfyssingurinn er því vel kominn að titlinum handknattleiksmaður ársins,” segir í tilkynningu frá HSÍ.

Rut Arnfjörð var bæði Íslands- og deildarmeistari með KA/Þór á árinu en það voru fyrstu stóru titlar KA/Þórs í handknattleik kvenna frá stofnun félagsins. Hún skoraði 87 mörk í 14 leikjum fyrir félagið og var valin besti sóknarmaður og besti leikmaður Olísdeildar kvenna auk þess að fá Sigríðarbikarinn sem mikilvægasti leikmaður deildarinnar valinn af þjálfurum.

Lék lengi í Danmörku

Rut lék með yngri flokkum og meistaraflokki HK áður en hún hélt í atvinnumennsku til Danmerkur aðeins 18 ára gömul. Í Danmörku lék hún með Team Tvis Holstebro, Randers HK, FCM Håndbold og Team Esbjerg áður en hún kom aftur heim sumarið 2020 og gekk til liðs við KA/Þór. Rut varð danskur meistari með Esbjerg 2019 og Evrópumeistari (EHF-cup) með Holstebro 2013.


Rut hefur leikið 104 landsleiki og skorað í þeim 215 mörk. Til viðbótar hefur hún verið fyrirliði landsliðsins undanfarin misseri.


Rut Arnfjörð var einnig valin handknattleikskona ársins 2013. „Hún hefur alla tíð verið verið mikil fyrirmynd bæði innan og utan vallar þar sem bæði yngri og eldri iðkendur líta upp til hennar,“ segir ennfremur í fréttatilkynningu HSÍ.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -