Selfyssingurinn Ómar Ingi Magnússon hefur farið á hamförum með SC Magdeburg síðustu vikur, bæði í þýsku 1. deildinni í Evrópudeildinni. Hann hefur raðað inn mörgum og deilt út stoðsendingum á samherja eins og molum úr konfektkassa.
Af þessum ástæðum var Ómar Ingi valinn í lið 23. umferðar fyrir stórleik gegn Stuttgart á sunnudaginn og í lið marsmánaðar í þýsku 1. deildarinnar eftir stórbrotna leiki í mánuðinum. Greint var frá þessu í gær á heimasíðu deildarinnar. Hægt er að kjósa á milli leikmannanna sjö á eftirfarandi slóð.
Lið marsmánaðar:
Lið 23. umferðar:
Ómar Ingi kom til SC Magdeburg á síðasta sumri frá danska meistaraliðinu Aalborg Håndbold. Hann er fjórði markahæstur í þýsku 1. deildinni um þessar mundir og er meðal þeirra efstu á lista þeirra sem átt hafa flestar stoðsendingar. SC Magdeburg er í öðru sæti deildarinnar.