- Auglýsing -
- Auglýsing -

Örn ráðinn íþróttastjóri

F.v., Þórir Haraldsson formaður handknattleiksdeildar Selfoss, Örn Þrastarson íþróttastjóri og Guðmundur Steinþórsson frá unglingaráði handknattleiksdeildar Selfoss. Mynd Umf. Selfoss / ÁÞG
- Auglýsing -

Örn Þrastarson hefur verið ráðinn íþróttastjóri handknattleiksdeildar Umf. Selfoss. Staða íþróttastjóra er ný innan deildarinnar og tekur yfir allt faglegt starf hennar ásamt yfirumsjón með þjálfun yngri flokka félagsins og stjórn handknattleiksakademíu deildarinnar. Starfið var auglýst í vor og bárust fjöldi umsókna, segir í tilkynningu frá handknattleiksdeild Selfoss þar sem öllum þeim sem sóttu um er þakkaður áhuginn.

„Örn þarf varla að kynna, en hann er öllum hnútum kunnur í félaginu, enda hefur hann komið víða við í starfinu undanfarin ár í þjálfun o.fl. Hann hefur m.a. þjálfað yngri flokka félagsins, verið aðalþjálfari m.fl. kvenna í fjögur ár, aðstoðarþjálfari m.fl. karla s.l. tvö ár og haft umsjón með handknattleiksakademíunni. Stjórn og unglingaráð deildarinnar eru ánægð með ráðninguna og vonast til að hún muni efla faglegt starf deildarinnar til langs tíma,“ segir í tilkynningu frá handknattleiksdeild Selfoss.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -