Sá besti heldur áfram hjá Gróttu

Birgir Steinn Jónsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild Gróttu. Birgir Steinn hefur verið í herbúðum Gróttu undanfarin tvö ár og staðið sig frábærlega og var m.a. besti leikmaður Olísdeildar samkvæmt tölfræðisíðunni HBStatz. Birgir skoraði 125 mörk í vetur og varð fjórði markahæsti leikmaður deildarinnar. Ef frá eru talin mörk úr vítaköstum, … Continue reading Sá besti heldur áfram hjá Gróttu