- Auglýsing -
- Auglýsing -

Sandra valin sú besta

Sandra Erlingsdóttir t.v. eftir að hún var valinn besti leikmaður EH Aalborg fyrir síðasta mánuð. Með henni til hægri er Mette Katrine Klostermann sem valin var maður sigurleiksins á AGF í dag. Milli þeirra er lukkudýr Álaborgarliðsins sem lét sig að sjálfsögðu vanta á leikinn. Mynd/Aðsend
- Auglýsing -

Sandra Erlingsdóttir hefur svo sannarlega slegið í gegn með EH Alaborg í Danmörku en hún gekk til liðs við félagið í sumar. Hún hefur leikið afar vel í fyrstu fimm leikjum liðsins í deildinni auk þess sem hún fór á kostum í bikarleik á dögunum gegn úrvalsdeildarliðinu Silkeborg-Voel, skoraði níu mörk og átti átta stoðsendingar.

Sandra var verðlaunuð í dag fyrir frammistöðu sína í liðnum mánuði því eftir sigur EH Aalborg á AGF á heimavelli var hún útnefnd besti leikmaður EH Aalborg í september. Stuðningsmenn og starfsmenn liðsins tóku þátt í valinu og var niðurstaðan kynnt eftir leikinn í dag, eins og áður sagði.

„Það er gaman að byrja svona vel,“ sagði Sandra glöð í bragði í skilaboðum til handbolta.is í dag.

Sannarlega frábært hjá Söndru sem hefur stimplað sig rækilega inn hjá efsta liði 1. deildar og átt mikinn þátt í að það er ósigrað í deildarkeppninni.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -