- Auglýsing -
- Auglýsing -

Selfoss leikur í tvígang í Koprivnice um aðra helgi

Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari og leikmenn Selfoss taka á móti Fram í Sethöllinni í kvöld. Mynd/Einar Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

Selfoss leikur báðar viðureignir sínar við tékkneska liðið KH ISMM Koprivnice í fyrstu umferð Evrópubikarkeppninnar í handknattleik karla ytra um aðra helgi, 18. og 19. september. Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari Selfossliðsins, staðfesti þetta í samtali við handbolta.is í dag. Af þessum ástæðum verður að fresta viðureign Selfoss og FH í fyrstu umferð Olísdeildar karla sem til stóð að færi fram á Selfossi föstudaginn 17. september.


Selfossliðið fer út á þriðjudaginn eftir viku með beinu flugi til Póllands og kemur heim mánudaginn 20. september.


„Með því að fara út á þriðjudaginn til Póllands komumst við hjá millilendingum sem einfaldar og auðveldar ferðalagið. Þetta kostar að vísu að ferðin verður einum degi lengri en annars hefði verið. Það er á hinn bóginn mikið hagræði að því að geta sleppt millilendingum og lenda ekki langt frá leikstað,“ sagði Halldór Jóhann við handbolta.is.


Koprivnice er ekki nema í hálfs annars tíma akstursfjarlægð frá Katowice í Póllandi þangað sem Selfossliðið flýgur.


Með því að selja heimaleikjaréttinn hafi tekist að ná viðunandi samningi við forráðamenn Koprivnice-liðsins. Fjárhagslega ætti útkoman að verða sæmileg að sögn Halldórs Jóhanns.


„Við fáum góðan tíma saman úti sem styrkir liðsheildina fyrir átökin í deildinni sem hefjast fljótlega eftir að við komum heim,“ sagði Halldór Jóhann ennfremur. Eins og kom fram í samtali við Halldór Jóhann á dögunum er fjölmennur hópur leikmanna Selfossliðsins fjarri vegna meiðsla og ekki von á að það fækki í hópnum fyrir Evrópuleikina í Tékklandi.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -