- Auglýsing -
- Auglýsing -

Stutt við starf íþrótta- og æskulýðsfélaga

Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ, Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra. Mynd/Stjórnarráðið
- Auglýsing -

Ráðist verður í aðgerðir til þess að styðja við starf íþrótta- og æskulýðsfélaga sem raskast hefur verulega vegna afleiðinga sóttvarnaráðstafana COVID-19. Þátttaka barna og ungmenna í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi hefur fjölþætt gildi og er mikilvægt að íþrótta- og æskulýðsfélög geti hafið óbreytta starfsemi sem fyrst þegar faraldrinum lýkur. Þá hefur faraldurinn einnig haft mikil áhrif á starf eldri flokka og afreksstarf í íþróttum. Stuðningur stjórnvalda á þessu sviði verður einn sá mesti á Norðurlöndunum. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins.

Þar segir ennfremur:

Aðgerðirnar eru eftirfarandi:

Greiðslur vegna launakostnaðar íþróttafélaga
Til að tryggja að sem minnst röskun verði á íþróttastarfi til lengri tíma litið og félög geti viðhaldið ráðningasambandi við starfsfólk sitt verður veittur styrkur sem nemur launakostnaði þess, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, hafi hlutaðeigandi íþróttafélagi verið gert að fella tímabundið niður starfsemi vegna opinberra sóttvarnaráðstafana á tímabilinu frá 1. október 2020 til og með 30. júní 2021.

Vinnumálastofnun mun annast framkvæmd þessa og er ráðgert að opnað verði fyrir umsóknir í janúar næstkomandi og verður úrræðið kynnt nánar á fundi Vinnumálastofnunar með íþróttahreyfingunni milli jóla- og nýárs. Ráðgert er að heildargreiðslur vegna þessarar aðgerðar nemi um einum milljarði króna.

Viðbótarframlag til stuðnings íþróttafélögum
Veitt verður stuðningsframlag til íþróttafélaga, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, og verður sami háttur hafður á og við úthlutun styrkja til félaganna í vor. Framlag sem nemur 300 milljónum kr. verður skipt milli íþróttafélaga sem starfrækja skipulagt íþróttastarf fyrir börn og unglinga 6-18 ára. Tillit verður tekið til fjölgreinafélaga og getur úthlutun til einstaks íþróttafélags getur ekki orðið hærri en 3% af veltu félagsins samkvæmt staðfestum reikningsskilum 2019. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands gerir tillögu til ráðherra um úthlutunina. Stuðningur þessi kemur til viðbótar 450 milljónum kr. sem úthlutað var til rúmlega 200 íþrótta- og ungmennafélaga í sumar sem lið í fjárfestingarátaki stjórnvalda.

Styrkir til æskulýðsfélaga
Félagasamtök sem standa fyrir skipulögðu starfi fyrir börn og ungmenni munu geta sótt um styrki vegna tekjutaps félaga vegna afleiðinga COVID-19. Til úthlutunar verða alls 50 milljónir kr. og verður styrkurinn auglýstur á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins í janúar. Umsóknum um styrki skal vera hægt að sýna fram á veruleg neikvæð áhrif á afkomu félagsins. Stuðningur þessi kemur til viðbótar 50 milljón kr. stuðningi sem auglýstur var til félaganna í júní síðastliðinn.

Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -