- Auglýsing -
- Auglýsing -

Þjálfari Frakka situr í covid-súpunni

Guillaume Gille þjálfari Frakka verður ekki við stjórnvölin á morgun þegar Frakkar mæti Íslendingum. Mynd/EPA
- Auglýsing -

Guillaume Gille, landsliðsþjálfari Frakka, er kominn í einangrun og stýrir ekki liði Ólympíumeistaranna gegn Íslendingum í annarri umferð milliriðlakeppninnar á Evrópumótinu í handknattleik á morgun.


Franska handknattleikssambandið sagði frá þessu í dag. Gille, sem er 45 ára gamall, er kominn í einangrun og losnar ekki úr henni fyrr en að hafa skilað inn niðurstöðum úr tveimur neikvæðum PCR prófum á jafnmörgum dögum.


Franska landsliðið verður á könnu Erick Mathé, aðstoðarþjálfara, á meðan Gille verður fjarri góðu gamni.


Einn leikmaður franska landsliðsins er þegar í einangrun, Karl Konan. Hann hefur verið innilokaður síðan á þriðjudaginn.

Viðureign Íslands og Frakklands hefst klukkan 17 á morgun.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -