- Auglýsing -
- Auglýsing -

Þór kominn til starfa hjá Aftureldingu

Gunnar Magnússon, Þór Guðmundsson, og Erla Dögg Ragnarsdóttir formaður meistaraflokksráð kvenna hjá Aftureldingu. Mynd/Afturelding
- Auglýsing -

Þór Guðmundsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari hjá meistaraflokki kvenna hjá Aftureldingu. Hann verður í þjálfarateyminu ásamt Guðmundi Helga Pálssyni og Einari Bragasyni. Þór mun einnig þjálfa yngri flokka félagsins.


Þór hefur starfað við þjálfun síðustu 9 ár og hefur hann þjálfað hjá bæði Fram og Víking. Síðustu ár var hann þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víking en hætti undir lok nýliðins árs.

„Fyrst og fremst hlakka hlakka ég til að hjálpa Aftureldingu að komast upp í efstu deild kvenna í handbolta. Auk þess er markmiðið að efla og hjálpa til við uppbyggingu yngri flokka og þá sérstaklega kvenna megin. Verkefnið er metnaðarfullt og krefjandi sem samsvarar mínum metnaði sem þjálfara. Ég er stoltur af því að ganga til liðs við jafn frábært félag og er spenntur fyrir komandi tímum í UMFA fjölskyldunni,“ segir Þór í tilkynningu sem Afturelding sendi frá sér.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -