- Auglýsing -
Íslendingar komu mikið við sögu þegar IFK Kristianstad vann öruggan sigur á Redbergslid, 31:25, í 3. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í dag en leikið var í Stokkhólmi. Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði sex mörk fyrir IFK og Teitur Örn Einarsson fjögur. Ólafur var einnig fastur fyrir í vörninni og var tvisvar vísað af leikvell.
Redbergslid var marki yfir í hálfleik, 15:14.
IFK hefur þar með sex stiga eftir þrjá leiki og er í efsta sæti ásamt Skövde en liðin eru þau einu taplausu í deildinni.
- Auglýsing -