- Auglýsing -
- Auglýsing -

Þrír vígðir í goðsagnahöll KA

F.v.: Atli Ragnarsson gjaldkeri handknattleiksdeildar KA, Kristján Þór Kristjánsson eigandi Verksmiðjunnar, Sverre Andreas Jakobsson, Jóhannes Gunnar Bjarnason, Haddur Júlíus Stefánsson formaður handknattleiksdeildar KA. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

Arnór Atlason, Jóhannes Gunnar Bjarnason og Sverre Andreas Jakobsson voru vígðir inn í goðsagnahöll handknattleiksdeildar KA fyrir leik KA og Stjörnunnar Olísdeildinni í KA-heimilinu í gær.


Arnór steig sín fyrstu skref með meistaraflokki KA tímabilið 2000-2001 er liðið varð deildarmeistari. Hann varð Íslandsmeistari með KA árið 2002 og fór fyrir liði KA sem varð bikarmeistari árið 2004. Hann hélt ungur út í atvinnumennsku þar sem hann lék með nokkrum af bestu liðum heims. Má þar m.a. nefna Magdeburg, FC Köbenhavn, AG Köbenhavm Flensburg, Saint-Raphaël og Aalborg.
Arnór lék 203 landsleiki fyrir Íslands hönd og skoraði í þeim 437 mörk. Með landsliðinu vann hann silfur á Ólympíuleikunum 2008 og brons á Evrópumeistaramótinu 2010 þar sem hann var stoðsendingahæsti maður mótsins og markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins.


Jóhannes Gunnar lék um árabil með meistaraflokksliði KA, alls 226 leiki. Í kjölfarið varð hann einn sigursælasti yngriflokkaþjálfari Íslandssögunnar en hann gerði KA alls 16 sinnum að Íslandsmeisturum áður en hann tók við stjórn meistaraflokks KA og gerði liðið að bikarmeistara 2004. Framlag Jóa við uppbyggingu handboltans innan KA verður aldrei fullmetið, segir í tilkynningu KA.


Sverre kom ungur inn í sterkt lið KA veturinn 1994-1995 og vann í kjölfarið allt sem hægt var að vinna með liðinu. Hann varð deildarmeistari 1996 og 1998, bikarmeistari 1995 og 1996 og Íslandsmeistari árið 1997 með KA. Í kjölfarið lék Sverre sem atvinnumaður í Þýskalandi og um leið alls 182 landsleiki fyrir Íslands hönd þar sem liðið vann silfur á Ólympíuleikunum 2008 og brons á Evrópumeistaramótinu tveimur árum síðar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -