- Auglýsing -
- Auglýsing -

Tíminn hefur aldrei liðið hægar

Elvar Örn Jónsson og Ýmir Örn Gíslason, fyrirliði. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Á síðustu andartökum hefðbundins leiktíma í viðureign Íslands og Noregs í dag vann Elvar Örn Jónsson boltann og kastaði yfir leikvöllinn að auðu marki Norðmanna. Staðan var jöfn, 27:27. Boltinn fór rétt framhjá annarri markstönginni, röngu megin fyrir íslenska liðið nánast á sama andartaki og leiktíminn var úti.

Menn héldu niðri í sér andanum meðan boltinn fór yfir leikvöllinn. Mynd/Hafliði Breiðfjörð


„Tíminn hefur aldrei liðið eins hægt og þegar við horfðum á eftir boltanum. Þetta var einhvern veginn svo lengi að gerast,“ sagði Sigvaldi Björn Guðjónsson, landsliðsmaður í handknattleik í samtali við handbolta.is eftir leikinn.


- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -