Tveir efnilegir skrifa undir

Bergur Bjartmarsson og Stefán Orri Arnalds, ungir og efnilegir handknattleiksmenn hafa skrifað undir þriggja ára samning við Fram, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá handknattleiksdeildinni. Þar segir ennfremur að strákarnir eiga eftir að vera í stóru hlutverki með FRAM U í Grill 66 deildinni á komandi keppnistímabili en það hefst eftir viku.