- Auglýsing -
- Auglýsing -

Tveir leikir við Dani og sá fyrri í kvöld

Arnór Viðarsson, Andri Már Rúnarsson, Guðmundur Bragi Ástþórsson, Þorsteinn Leo Gunnarsson, Hreiðar Levý Guðmundsson og Einar Bragi Aðalsteinsson á æfingu U20 ára landsliðsins í gær. Mynd/HSÍ
- Auglýsing -

U-20 ára landslið karla í handknattleik leikur í kvöld og á morgun vináttulandsleiki við Dani á Ásvöllum í Hafnarfirði. Liðin mættust í Danmörku nokkru fyrir áramót og eru Danir að endurgjalda heimsóknina.


Bæði lið eru að búa sig undir Evrópumeistaramót 20 ára landsliða karla sem fram fer í júlí í Portúgal. Þjálfarar U-20 landsliðs Íslands eru þeir Einar Andri Einarsson og Róbert Gunnarsson. Þjálfari danska liðsins er Arnór Atlason einn af silfurverðlaunahöfunum okkar frá því á Ólympíuleikunum 2008 og samherji Róberts.


Leikurinn í kvöld hefst kl. 20 og á morgun kl. 16. Aðgangseyrir er 500 krónur en frítt er fyrir 16 ára og yngri og er miðasalan á Ásvöllum, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá HSÍ.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem teknar voru á æfingu U20 ára landsliðs Íslands í Kaplakrika í gærkvöld.

Leikjunum verður streymt á Youtube-rás HSÍ.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -