- Auglýsing -
- Auglýsing -

Hleypur í skarðið fyrir Stefán Rafn

Martin Stranovsky í leik með Barcelona fyrir nokkrum árum. Hann er nú kominn til Pick Szeged í Ungverjalandi. Mynd/EPA
- Auglýsing -

Ungverska stórliðið Pick Szeged hefur samið við slóvakann, Martin Stranovsky, 31 árs gamlan hornamann til fjögurra mánaða. Honum er ætlað að hlaupa í skarðið fyrir Stefán Rafn Sigurmannsson meðan hann jafnar sig á erfiðum meiðslum.

Stranovsky kemur frá Tatran Presov í Slóvakíu en hann hefur á ferlinum leikið með fleiri liðum svo sem Barcelona og Ademar León á Spáni.

Eins og handbolti.is greindi frá á dögunum hefur iljarfellsbólga (plantar fascitis) hrjáð Stefán Rafn mánuðum saman. Hún lýsir sér í særindum í sin í ilinni sem liggur út í hælinn, svokölluð, plantar fascia. Með komu Stranovsky er ljóst að nokkuð er í að Stefán Rafn verði kominn á fulla ferð á ný handknattleiksvellinum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -