- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fer frá KA í herbúðir FH-inga

Ásgeir Jónsson, formaður handknattleiksdeildar FH, og Svavar Ingi Sigmundsson. Mynd/FH
- Auglýsing -

Svavar Ingi Sigmundsson, ungur og efnilegur markmaður frá KA, hefur skrifað undir þriggja ára samning við Handknattleiksdeild FH og mun ganga til liðs við félagið í sumar.


Svavar Ingi hefur leikið með öllum yngri landsliðum HSÍ og er í dag í U-21 árs landsliði Íslands.


„Svavar Ingi er einn efnilegasti markmaður landsins og erum við FH-ingar virkilega ánægðir með að fá hann í Kaplakrika,“ segir Ásgeir Jónsson formaður Handknattleiksdeildar FH í tilkynningu sem FH sendi frá sér.
„Fyrstu kynni okkar af Svavari Inga eru að hér er á ferð alvöru drengur sem er með mikinn metnað og hann ætlar sér langt. Við FH-ingar munum hjálpa honum að ná sínum markmiðum,“ er ennfremur haft eftir Ásgeiri.


Svavar Ingi hefur tekið þátt í 13 af 16 leikjum KA í Olísdeildinni á leiktíðinni og varði fjórða hvert skot sem á markið hefur komið þegar hann hefur staðið vaktina, samkvæmt tölfræði HBStatz.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -