- Auglýsing -
- Auglýsing -

Hákon Daði sleit krossband – fer í aðgerð á morgun

Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari Gummersbach, og Hákon Daði Styrmisson. Mynd/Philipp Ising
- Auglýsing -

Hákon Daði Styrmisson handknattleiksmaður hjá Vfl Gummersbach í Þýskalandi sleit krossband í hægr hné á æfingu liðsins á föstudaginn. Þetta kemur fram í nýjasta þætti hlaðvarpsþáttarins Leikhléið sem kom út í gærkvöld. Andri Heimir Friðriksson, bróðir Hákons Daða, er einn umsjónarmanna þáttarins og staðfesti hann þessar fregnir af bróður sínum.

„Læknirinn sagði að það væri að öllum líkindum slitið eða rifið,“ sagði Andri Heimir í þættinum að það hafi verið dómur læknis Gummersbach-liðsins eftir að hafa skoðað hné Hákons Daða sem fer í aðgerð strax á morgun.

Þar með leikur Hákon Daði ekki meira með Gummersbach á þessari leiktíð en hann kom til félagsins á síðasta sumri og hefur staðið sig afar vel. Í byrjun nóvember var greint frá því að Eyjamaðurinn hafi framlengt samning sinn við félagið til ársins 2024.

Hákon Daði er á meðal þeirra sem er í 35 manna hópi íslenska landsliðsins sem valinn var á dögunum til þátttöku á EM. Andri Heimir segir ennfremur í þættinum góða að Hákon Daði hafi verið í 20 manna hópi sem til stendur að velja til æfinga sem hefjast upp úr áramótum.


Hér fyrir neðan er hlekkur á fyrrgreindan þátt sem hægt er að hlusta á með því að smella á örina neðst í hægra horninu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -