- Auglýsing -
- Auglýsing -

Hrafnhildur Ósk og Anna Úrsúla halda utan um B-landsliðið

Hrafnhildur Ósk Skúladóttir t.v. og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir þjálfarar B-landsliðsins í handknattleik. Mynd/Ívar
- Auglýsing -

HSÍ hefur ráðið Hrafnhildi Ósk Skúladóttur og Önnu Úrsúlu Guðmundsdóttur í þjálfarateymi kvennalandsliðsins í handknattleik og verða þær með umsjón yfir B-landsliði kvenna ásamt Arnari Péturssyni landsliðsþjálfara og Ágústi Þór Jóhannssyni aðstoðarþjálfara.

Hrafnhildur Ósk er leikjahæsta landsliðskona Íslands. Hún tók þátt í 170 landsleikjum á sínum tíma. Anna Úrsúla lék liðlega 100 landsleiki, sá síðasti var í vor gegn Slóveníu. Báðar voru þær í A-landsliðunum sem tók þátt EM 2010, HM 2011 og EM 2012, en það eru einu lokamótin sem íslenska kvennalandsliðið hefur tekið þátt í.

Valinn hefur verið hópur sem kemur til æfinga í október en B-landsliðið heldur til Tékklands síðla í nóvember til þátttöku á æfingamóti.


Markverðir:
Eva Dís Sigurðardóttir, Aftureldingu.
Sara Sif Helgadóttir, Val.
Sunna Guðrún Pétursdóttir, KA/Þór.
Aðrir leikmenn:
Auður Ester Gestsdóttir, Val.
Ásta Björk Júlíusdóttir, Haukum.
Birta Lind Jóhannsdóttir, Haukum.
Birta Rún Grétarsdóttir, Oppsal.
Elín Rósa Magnúsdóttir, Val.
Elna Ólöf Guðjónsdóttir, HK.
Harpa María Friðgeirsdóttir, Fram.
Ída María Stefánsdóttir, Val.
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, HK.
Jónína Hlín Hansdóttir, Fram.
Katla María Magnúsdóttir, Stjörnunni.
Katrín Tinna Jensdóttir, Volda.
Lena Margrét Valdimarsdóttir, Stjörnunni.
Rakel Sara Elvarsdóttir, KA/Þór.
Sara Dögg Hjaltadóttir, Gjerpen.


Starfsfólk A og B-landsliðanna:
Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari.
Ágúst Þór Jóhannsson, aðstoðarþjálfari.
Hlynur Morthens, markmannsþjálfari.
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, aðstoðarþjálfari.
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, aðstoðarþjálfari.
Þorbjörg Jóhanna Gunnarsdóttir, liðsstjóri.
Ágústa Sigurjónsdóttir, sjúkraþjálfari.
Særún Jónsdóttir, sjúkraþjálfari.
Tinna Jökulsdóttir, sjúkraþjálfari.
Jóhann Róbertsson, læknir.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -