- Auglýsing -
- Auglýsing -

HSÍ hefur miðasölu á HM karla

Kátir stuðningsmenn íslenska landsliðsins á EM í janúar sl. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Skrifstofa HSÍ byrjaði í dag miðasölu fyrir heimsmeistaramótið í handknattleik karla sem fram fer í Svíþjóð og Póllandi í janúar 2023. Miðasalan fer í fram í netverslun HSÍ og hófst klukkan 14.


Slóðin í netverslun HSÍ er: https://www.hsi.is/shop/


HSÍ hefur tryggt sér dagpassa á leiki Íslands í riðlakeppninni. Íslenska landsliðið leikur í Kristianstad í riðlakeppninni við Portúgal, Ungverjaland og Suður Kóreu frá 12. – 16. janúar.


HSÍ hefur einnig tryggt sér dagpassa í milliriðil mótsins sem spilaður verður í Gautaborg 18. – 22. janúar. Í millriðlinum mætast þrjú lið úr C-riðli og þrjú úr D-riðli, þeim sem íslenska landsliðið er. Í C-riðli verða Evrópumeistarar Svíþjóðar, Brasilía, landslið frá Afríku og Úrúgvæ.

Mynd/Hafliði Breiðfjörð


Miðarnir sem HSÍ hefur fengið úthlutað í riðlakeppnina eru í hólfum K2, K4, J1 – J4 og H1 (samliggjandi hólf) og er verðið kr. 15.000 fyrir dagpassa á leikdögum Íslands.


Miðar í milliriðla eru í hólfum G og H (samliggjandi hólf) og er verðið kr. 18.000 fyrir dagpassa á leikdögum Íslands.


Mótshaldarar eru ekki með sérstakt miðaverð fyrir börn eða eldriborgara.


Allar nánari upplýsingar má fá hjá skrifstofu HSÍ.

Leikjadagskrá Íslands í riðlakeppni HM í janúar:
12. janúar: Ísland - Portúgal.
14. janúar: Ísland - Ungverjaland.
16. janúar: Ísland - Suður Kórea.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -