- Auglýsing -
- Auglýsing -

Kveður Hauka í sumar

Björgvin Páll Gústavsson er ómyrkur í máli í garð leikskipulags Olísdeildar. Mynd/EPA
- Auglýsing -

Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handknattleik, hefur ákveðið að nýta sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við Hauka og yfirgefa félagið eftir leiktíðina í sumar. Þetta kemur fram í tilkynningu sem handknattleiksdeild Hauka sendi frá sér í kvöld.


Í tilkynningu Hauka segir ennfremur: „Samkvæmt núverandi samningi Björgvins við félagið þá vinnur Björgvin hálft starf hjá  félaginu sem leikmaður, markmannsþjálfari og í markaðsstörfum. 

Björgvin Páll vill geta haft handboltann sem fullt starf til að geta sinnt fjölskyldu sinni betur og  hefur því leitað á önnur mið.“ 

„Við sýnum Björgvini fullan skilning á hans stöðu. Við munum í sameiningu gera allt til að ná sem bestum árangri í vetur  og ná okkar markmiðum þannig að við getum kvatt sáttir,“ er haft eftir Þorgeiri Haraldssyni, formanni handknattleiksdeildar Hauka í tilkynningunni.  

„Þetta var gríðarlega erfið ákvörðum en eitthvað sem ég þarf að  gera. Ég og fjölskyldan mín erum með okkar bækistöð inn í Reykjavík. Ég vil geta haft meiri  tíma fyrir fjölskylduna og verið í félagi þar sem börnin mín alast upp þannig að við getum átt  það saman. Ég er ótrúlega þakklátur Haukum fyrir þeirra fagmennsku og skilning en þessi  ákvörðun hefur lítið með Hauka að gera enda hefur félagið ávallt stutt vel við bakið á mér í  einu og öllu, en það er einmitt þess vegna sem að þessi ákvörðun var svona erfið. Minn  draumur er að geta skilið sáttur við liðið í sumar og að við sem lið verðum þá búnir að koma  Haukum á þann stall sem þeir eiga heima á,” segir Björgvin Páll í yfirlýsingu sem birtist í tilkynningu handknattleiksdeildar Hauka í kvöld.

Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður og markvörður Hauka. Mynd/Haukar
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -