- Auglýsing -
- Auglýsing -

Magnús frá Selfossi til Fram – nokkuð um félagaskipti á síðustu dögum

Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Magnús Öder Einarsson, sem um árabil hefur leikið með Selfossi, hefur fengið félagaskipti yfir í raðir Fram, eftir því sem fram kemur á félagaskiptasíðu Handknattleikssambands Íslands. Magnús hefur verið mikið frá keppni á leiðtíðinni vegna meiðsla en virðst hafa náð sér á strik og er klár í slaginn með Fram þegar keppni hefst á ný í Olísdeild karla í vikunni.

  • Markvörðurinn Sunneva Einarsdóttir hefur ákveðið að hlaupa undir bagga hjá Fram og fengið skipti frá HK þar sem hún var síðast.
  • Fleiri félagaskipti hafa verið samþykkt á síðustu dögunum. Auk þess sem að framan er getið eru þessi þau helstu:
  • Ólöf Marín Hlynsdóttir til KA/Þórs frá Aftureldingu, að láni út maí.
  • Jón Hjálmarsson, Bjarki Garðarsson og Gísli Jörgen Gíslason hafa skipt úr Víkingi yfir til venslafélagsins Berserkja.
  • Margrét Björg Castillo hefur fengið heimild til þess að leika með Aftureldingu til loka maí sem lánsmaður frá Fram.
  • Gunnar Valdimar Johnsen hefur verið lánaður frá ÍR til Víkings til 1. maí.
  • Guðrún Maryam Rayadh hefur einnig fengið tímabundin skipti til Víkings frá ÍR.
  • Þórhildur Vala Kjartansdóttir hefur verið lánuð til ÍR frá Aftureldingar til loka maí.
  • Hreiðar Levy Guðmundson er ný orðinn liðsmaður Vals eftir mánaðarlán til Hauka.
  • Óðinn Þór Ríkharðsson er kominn til KA á ný eftir veru hjá Gummersbach hluta desembermánaðar.
  • Guðmundur Bragi Ástþórsson er mættur til leiks hjá Haukum eftir að hafa leikið með Afturelding frá því í september og fram til áramóta.

    Nánar má skoða félagaskipti á heimasíðu HSÍ.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -