- Auglýsing -
- Auglýsing -

Margar hafa flutt heim

Helena Rut Örvarsdóttir og Eva Björk Davíðsdóttir léku stórt hlutverk í jafntefli Stjörnunnar í kvöld við KA/Þór. Mynd/Stjarnan
- Auglýsing -

Eins og oft áður hefur verið líflegt á leikmannamarkaðnum  kvennaflokki í sumar.  Ekki aðeins hafa átt sér stað skipti á milli félaga innanlands heldur hefur hópur handknattleikskvenna flust til landsins frá Evrópu. Hér að neðan má finna lista sem handbolti.is hefur tekið saman yfir helstu hreyfingar milli liðanna í Olísdeild kvenna sem hafa komið fram í tilkynningum félaganna. Eins er þar að finna þær sem fluttu heim í sumar.

Ekki er víst að öll neðangreind félagsskipti hafi hlotið blessun Handknattleikssambandsins enn sem er komið enda er alltaf eitthvað um að ekki sé gengið frá félagsskiptum fyrr en á elleftu stundu áður en flautað er til leiks á Íslandsmótinu.

Listinn verður uppfærður jafnt og þétt næstu daga og vikur eftir því sem fleiri félagsskipti verða opinberuð.

Birna Berg Haraldsdóttir til ÍBV frá Neckarsulmer

Eva Björk Davíðsdóttir til Stjörnunnar frá Skuru

Karólina Bæhrenz Lárudóttir tók fram skóna og gekk til liðs við Fram

Rut Arnfjörð Jónsdóttir fór til KA/Þórs frá Esbjerg

Mariam Eradze til Vals frá Toulon

Helena Rut Örvarsdóttir til Stjörnunnar frá SönderjyskE

Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir til ÍBV frá frá Bourg-de-Péage Drôme Handball

Þóra María Sigurjónsdóttir til HK frá Aftureldingu

Saga Sif Gísladóttir til Vals frá Haukum

Þórey Anna Ásgeirsdóttir til Vals frá Stjörnunni 

Hulda Dís Þrastardóttir til Vals frá Selfossi

Guðrún Erla Bjarnadóttir til Fram frá Haukum

Heiðrún Dís Magnúsdóttir til Stjörnunnar frá Fram

Anna Karen Hansdóttir til Stjörnunnar frá Horsen

Liisa Bergdís Arnarsdóttir til Stjörnunnar frá Kongsvinger

Katla María Magnúsdóttir til Stjörnunnar frá Selfossi

Hildur Guðjónsdóttir til FH frá Stjörnunni, að láni

Írena Björk Ómarsdóttir til FH frá Stjörnunni

Zandra Jarvin til FH frá Spårvagen í Svíþjóð

Guðrún Jenný Sigurðardóttir til Hauka frá Fjölni

Karen Birna Aradóttir til Hauka frá Fjölni

Ólöf María Stefánsdóttir til ÍBV frá Val

Alexandra Líf Arnarsdóttir til HK frá Haukum

Ólöf Ásta Arnþórsdóttir til HK frá Stjörnunni

Anna Brynja Hedin til Fjölnis/Fylkis frá ÍR

Anna Karen Jónsdóttir til Fjölnis/Fylkir frá Fjellhamer

Ada Kozicka til Fjölnis/Fylkis frá HK

Oddný Björg Stefánsdóttir til Fjölnis/Fylkis frá ÍR

Rakel Dögg Bragadóttir og Sigurjón F. Björnsson tóku við þjálfun kvennaliðs Stjörnunar

Gunnar Gunnarsson tók við þjálfun kvennaliðs Hauka af Árna Stefáni Guðjónssyni

Andri Snær Stefánsson tók við þjálfun kvennaliðs  KA/Þórs af Gunnari Líndal Sigurðssyni

Ágúst Þór Jóhannsson hætti sem þjálfari færeyska kvennalandsliðsins

Hlynur Morthens hætti sem markvarðaþjálfari færeyska kvennalandsliðsins

Kári Garðarsson tók við þjálfun kvennaliðs Gróttu.

  • sendið athugasemdir á ivar@handbolti.is

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -