- Auglýsing -
- Auglýsing -

Markadrottning Grill66-deildar: „Vissi að ég átti góða möguleika“

Tinna Sigurrós Traustadóttir hlaut fern verðlaun á lokahófinu í dag. Mynd/Ívar
- Auglýsing -

„Þetta er skemmtilegur áfangi og gaman að ná honum,“ sagði Tinna Sigurrós Traustadóttir leikmaður Selfoss og markahæsti leikmaður í Grill66-deild kvenna með 162 mörk í 19 leikjum. Tinna Sigurrós innsiglaði nafnbótina með því að skora 15 mörk í gær þegar Selfoss vann ungmennalið Vals í lokaumferðinni, 36:21. Í leikslok fékk Selfossliðið afhent verðlaun sín en það leikur í Olísdeild kvenna á næsta keppnistímabili.

„Ég hef aðeins fylgst með stöðunni í vetur og vissi vel að ég átti góða möguleika enda hefur mér gengið afar vel í vetur. Það að verða markahæsti leikmaður deildarinnar er uppskera þess að mér hefur gengið mjög vel í vetur,“ sagði Tinna Sigurrós þegar handbolti.is hitti hana stuttlega að máli í sigurgleðinni í Origohöllinni í gær.

Sigurlið Grill66-deild kvenna 2022, Selfoss, ásamt þjálfara og aðstoðarfólki. Mynd/Ívar

„Okkur í Selfossliðinu hefur gengið afar vel í vetur. Við settum okkur það markmið að vinna deildina og það tókst. Nú tekur við undirbúningur fyrir Olísdeildina á næsta keppnistímabili. Við erum bara allar mjög spenntar að takast á við það verkefni,“ sagði Tinna Sigurrós sem hefur svo sannarlega farið á kostum í Grill66-deildinni í tímabilinu.

Hefur nóg að gera

Tinna Sigurrós er um stundir ein efnilegasta handknattleikskona landsliðsins og var ein lykilleikmanna U18 ára landsliðsins sem var hársbreidd frá að koma inn i A-keppni Evrópumótsins eftir þátttöku í umspiliskeppni í nóvember. „Nú taka við nokkrir daga þar sem ég ætla að hlaða rafhlöðurnar áður en kemur að æfingum með landsliðinu eftir páska. Eftir það fer maður á fullt að búa sig undir Olísdeildina,“ sagði þessi metnaðarfulla handknattleikskona.

Skoraði 17 mörkum meira en sú næsta

Tinna Sigurrós skoraði 17 mörkum meira en Auður Brynja Sölvadóttir úr Víkingi þegar upp er staðið, þó lék Tinna Sigurrós einum leik færra en Auður Brynja. Sonja Lind Sigsteinsdóttir, ungmennaliði Stjörnunnar, varð í þriðja sæti með 125 mörk og Hildur Guðjónsdóttir FH, í fjórða sæti með 119 mörk.

Einn leikur er eftir á keppnistímabilinu í Grill66-deildinni. Viðureign ÍBV U og Fram U sem fram fer á fimmtudaginn. Úrslitin munu hinsvegar hvorki breyta stöðu efstu liða deildarinnar né röð markahæstu leikmanna.

Hér fyrir neðan er listi yfir þá leikmenn Grill66-deildarinnar sem hafa skorað 60 mörk eða fleiri.

Nafn:FélagMörkFj.l
Tinna Sigurrós TraustadóttirSelfossi16219
Auður Brynja SölvadóttirVíkingi14520
Sonja Lind SigsteinsdóttirStjörnunni U12518
Hildur GuðjónsdóttirFH11920
Ída Margrét StefánsdóttirVal/Gróttu11117
Karen Tinna DemianÍR10816
Arna Þyrí ÓlafsdóttirVíkingi107 19
Katrín Anna ÁsmundsdóttirGróttu10620
Fanney Þóra ÞórsdóttirFH9720
Alfa Brá OddsdóttirHK U9218
Þóra Björg StefánsdóttirÍBV U9115
Embla SteindórsdóttirHK U8118
Tinna Soffía TraustadóttirSelfossi7820
Tinna Valgerður GísladóttirFram U7812
Aníta Björk ValgeirsdóttirÍBV U7718
Roberta StropusSelfossi7719
Hildur María LeifsdóttirÍR7618
Katla María MagnúsdóttirStjörnunni U7612
Valgerður Helga ÍsaksdóttirGróttu7420
Rut BernódusdóttirGróttu7318
Ada KozickaFjölni/Fylki7118
Ester Inga ÖgmundsdóttirVíkingi6920
Sara Dröfn RikharðsdóttirÍBV U6916
Hrafnhildur Irma JónsdóttirFjölni/Fylki6819
Valgerður ArnaldsFram U6716
Ksenija DzaferovicÍR6919
Berglind GunnarsdóttirVal U6617
Erna Guðlaug GunnarsdóttirFram U6610
Emilía Ósk SteinarsdóttirFH6519
Elínborg Katla ÞorbjörnsdóttirSelfossi6520
Ólöf María StefánsdóttirÍBV U6516
Svala Júlía GunnarsdóttirFram U6513
Emma Havin SardarsdóttirFH6420
Adda Sólbjört HögnadóttirStjörnunni U6316
Stefanía Ósk EngilbertsdóttirÍR6320
Lilja ÁgústsdóttirVal U618
Katrín Helga SigurbergsdóttirGróttu6120
Kolbrún Arna GarðarsdóttirFjölni/Fylki6015
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -