- Auglýsing -
- Auglýsing -

Mikkjalsson hefur sagt skilið við KA

Pætur Mikkjalsson í skotstöðu í leik með KA í haust. Hann leikur ekki fleiri leiki með KA á þessu tímabili, hið minnsta. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

Færeyski línumaðurinn Pætur Mikkjalsson hefur yfirgefið herbúðir Olísdeildarliðs KA og gengið til liðs við H71 í Færeyjum. Frá félagaskiptunum er greint á vef HSÍ en þau gengu í gegn á föstudaginn.


Mikkjalsson lék með H71 í gær og skoraði þrjú mörk þegar liðið vann VÍF frá Vestmanna, 33:24, í fyrri undanúrslitaleik liðanna í bikarkeppninni.


Mikkjalsson kom til KA fyrir keppnistímabilið í haust frá danska 1. deildarliðinu SUS Nyborg. Hann kom við sögu í 13 leikjum í Olísdeildinni og skoraði 24 mörk.

Hvað verður um Larsen?

Óvíst er hvort brottför Mikkjalsson frá KA hafi áhrif á það hvort unnusta hans, Sofie Söberg Larsen, mæti til leiks með KA/Þór þegar á keppnistímabilið líður en hún hefur verið í Danmörku við nám síðustu mánuði, eftir því sem handbolta.is var tjáð fyrir áramót. Von var á henni til Akureyrar á nýjan leik með hækkandi sól.

Larsen lék nokkra leiki með KA/Þór í september og október og gerði það gott.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -