- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olísdeild kvenna – 5. umferð, samantekt

Fram til sóknar, KA/Þór. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

Fimmtu umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik lauk á sunnudaginn. Helstu niðurstöður eru þessar:

Afturelding - Fram 25:29 (11:14).
Mörk Aftureldingar: Katrín Helga Davíðsdóttir 9/2, Ólöf Marín Hlynsdóttir 8, Sylvía Björt Blöndal 6, Susan Ines Gamboa 2.
Varin skot: Eva Dís Sigurðardóttir 6, 17,1%.
Mörk Fram: Ragnheiður Júlíusdóttir 7/3, Emma Olsson 6, Stella Sigurðardóttir 4, Hildur Þorgeirsdóttir 3, Þórey Rósa Stefánsdóttir 3, Harpa María Friðgeirsdóttir 2, Kristrún Steinþórsdóttir 2, Karen Knútsdóttir 1, Svala Júlía Gunnarsdóttir 1.
Varin skot: Hafdís Renötudóttir 1, 5,3% - Írena Björk Ómarsdóttir 1, 12.5%.
  • Enginn af leikmönnum Aftureldingar skapaði marktækifæri eða átti stoðsendingu í leiknum við Fram. Er þetta tómlegasti afrakstur tímabilsins. Engu að síður lánaðist Aftureldingu að skora 25 mörk sem segir að ekki þarf alltaf á stoðsendingum að halda.
  • Tveir áttu sendingu á samherja sem varð til þess að vítakast var dæmt, Katrín Helga Davíðsdóttir og Telma Rut Frímannsdóttir.
  • Líflegra er yfir tölfræðinni í varnarleik Aftureldingarliðsins. Sylvía Björt Blöndal náði átta löglegum stöðvunum og stal boltanum einu sinni. Telma Rut var þrjú stopp og þrjá stolna bolta.
  • Afturelding var utan vallar í tvær mínútur.
  • Hildur Þorgeirsdóttir og Ragnheiður Júlíusdóttir sköpuðu átta marktækifæri hvor fyrir Fram. Hildur var með fimm stoðsendingar og Ragnheiður fjórar. Karen Knútsdóttir átti þrjár stoðsendingar og Emma Olsson skoraði úr sex af sjö skotum sínum.
  • Olsson gerði einnig usla í sóknarleik Aftureldingar. Hún var með fimm lögleg stopp í vörn Fram, stal boltanum fjórum sinnum og varði eitt skot. Stella Sigurðardóttir varði sex skot auk þess að vera með þrjú lögleg stopp og krækja boltanum af andstæðingnum einu sinni.
  • Fram var utan vallar í tvær mínútur.
  • Emma Olsson, Fram, var maður leiksins samkvæmt samantekt HBStatz.
ÍBV - Stjarnan 24:26 (12:15).
Mörk ÍBV: Sunna Jónsdóttir 6, Elísa Elíasdóttir 6, Karolina Olszowa 3, Harpa Valey Gylfadóttir 3, Marija Jovanovic 3/1, Þóra Björg Stefánsdóttir 2/2, Lina Cardell 1.
Varin skot: Marta Wawrzykowska 7, 31,8% – Erla Rós Sigmarsdóttir 7, 38,9%.
Mörk Stjörnunnar: Eva Björk Davíðsdóttir 6/4, Helena Rut Örvarsdóttir 5, Stefanía Theodórsdóttir 4, Britney Cots 3, Lena Margrét Valdimarsdóttir 3/1, Ásthildur Bertha Bjarkadóttir 2, Elísabet Gunnarsdóttir 2, Anna Karen Hansdóttir 1.
Varin skot: Darija Zecevic 18, 42,9%.
  • Karolina Olszowa skapaði 11 marktækifæri fyrir ÍBV í leiknum við Stjörnuna í Vestmannaeyjum á laugardaginn. Af því voru sex stoðsendingar. Sunna Jónsdóttir var rétt á eftir með sköpuð færi og óhætt að segja að þær hafi verið allt í öllu.
  • Olszowa lét einnig til sína taka í vörninni og var með fimm lögleg stopp auk þess sem hún nappaði boltanum í tvígang af leikmönnum Stjörnunnar. Sunna var með fjórar löglegar stöðvanir, varði eitt skot og stal boltanum einu sinni.
  • Elísa Elíasdóttir vann boltann tvisvar og átti þrjár löglegar stöðvanir.
  • ÍBV var utan vallar í 6 mínútur og átti Marija Jovanovic í hlut í öll skipti. Tók hún ekkert þátt í leiknum í síðari hálfleik.
  • Lena Margrét Valdimarsdóttir skapaði átta marktækifæri fyrir Stjörnuna. Af því voru fimm stoðsendingar. Eva Björk Davíðsdóttir bjó til fjögur marktækifæri, þar af voru tvær stoðsendingar.
  • Helena Rut Örvarsdóttir var með þrjú lögleg stopp í vörninni, varði þrjú skot og krækti í boltann í þrígang af leikmönnum ÍBV. Lena Margrét stal boltanum tvisvar sinnum af andstæðingunum og átti tvö lögleg stopp.
  • Stjarnan var utan vallar í 6 mínútur.
  • Darija Zecevic, markvörður Stjörnunni, var maður leiksins samkvæmt samantekt HBStatz.
Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir lék afar vel með HK gegn Íslands- og bikarmeisturum KA/Þórs. Hér freistar hún þess að komast á milli Önnu Þyrí Ólafsdóttur og Huldu Bryndísar Tryggvadóttur. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
KA - HK 26:26 (12:13).
Mörk KA/Þórs: Martha Hermannsdóttir 6/6, Rut Arnfjörð Jónsdóttir 5/1, Rakel Sara Elvarsdóttir 4, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 3, Unnur Ómarsdóttir 3, Aldís Ásta Heimisdóttir 2, Hulda Bryndís Tryggvadóttir 2, Ásdís Guðmundsdóttir 1.
Varin skot: Matea Lonac 7/1 25%. Sunna Guðrún Pétursdóttir 0.
Mörk HK: Jóhanna Margrét Sigurðardóttir 8/4, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 7, Alexandra Líf Arnarsdóttir 2, Berglind Þorsteinsdóttir 2, Elna Ólöf Guðjónsdóttir 2, Tinna Sól Björgvinsdóttir 2, Karen Kristinsdóttir 1, Sara Katrín Gunnarsdóttir 1/1, Þóra María Stefánsdóttir 1.
Varin skot: Margrét Ýr Björnsdóttir 10/2, 28,6%. Ingibjörg Gróa Guðmundsdóttir 0.
  • Rut Arnfjörð Jónsdóttir var með fullkomna nýtingu í markskotum, fimm af fimm, fjögur sköpuð færi, þrjá vítasendingar og vann tvö vítaköst.
  • Aldís Ásta Heimisdóttir skapað sex marktækifæri, af því voru fimm stoðsendingar. Hún var einnig með eina vítasendingu og fiskaði eitt vítakast.
  • Rakel Sara Elvarsdóttir skoraði fjögur mörk úr fjórum tilraunum og vann tvö vítaköst.
  • Martha Hermannsdóttir átti sex lögleg stopp í vörninni varði tvö skot. Anna Þyrí Halldórsdóttir var með fjórar löglegar stöðvarnir og stal boltanum einu sinni.
  • Aldís Ásta átti einnig fjögur lögleg stopp í vörninni auk þess sem hún stal boltanum þrisvar.
  • KA/Þór var utan vallar í fjórar mínútur.
  • Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir átti fjórar stoðsendingar fyrir HK og Jóhanna Margrét Sigurðardóttir tvær. Valgerður átti einnig eina sendingu sem skilaði vítakasti og fiskaði eitt vítakast þar að auki.
  • Elna Ólöf Guðjónsdóttir kom mikið við sögu í vörn HK eins og oftast áður. Hún var með fjögur lögleg stopp, stal boltanum þrisvar sinnum af leikmönnum KA/Þórs og varði eitt skot. Á hana voru dæmd tvö vítaköst. Jóhanna Margrét var með fjögur lögleg stopp.
  • Berglind Þorsteinsdóttir átti þrjú lögleg stopp og stal boltanum einu sinni.
    HK var utan vallar í 6 mínútur.
  • Rut Arnfjörð Jónsdóttir, KA/Þór, var maður leiksins samkvæmt samantekt HBStatz.
Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
Valur - Haukar 32:26 (13:14).
Mörk Vals: Thea Imani Sturludóttir 7/1, Morgan Marie Þorkelsdóttir 6, Mariam Eradze 5, Elín Rósa Magnúsdóttir 4, Auður Ester Gestsdóttir 3, Hildigunnur Einarsdóttir, 2, Lilja Ágústsdóttir 2, Íris Ásta Pétursdóttir 2, Hildur Björnsdóttir 1.
Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 8, 36,4% – Saga Sif Gísladóttir 7, 36,8%.
Mörk Hauka: Sara Odden 7, Ásta Björt Júlíusdóttir 6/2, Elína Klara Þorkelsdóttir 4, Berglind Benediktsdóttir 3, Berta Rut Harðardóttir 2, Ragnheiður Ragnarsdóttir 2, Birta Lind Jóhannsdóttir 2.
Varin skot: Annika Friðheim Petersen 11/1, 30,5% – Margrét Einarsdóttir 1, 12,5%.
  • Thea Imani Sturludóttir var ekki aðeins markahæsti leikmaður Vals heldur átti hún einnig sex stoðsendingar á samherja. Morgan Marie Þorkelsdóttir og Mariam Eradze sköpuðu tvö marktækifæri hvor.
  • Thea Imani var einnig aðsópsmikil í vörninni með sex lögleg stopp. Hulda Dís Þrastardóttir náði fjórum og Hildigunnur Einarsdóttir þremur.

    Mariam varði sjö skot og ljóst að uppeldið í blaki í yngri flokkum hefur skilað sér í varnarleikinn í handboltanum.
  • Valur var utan vallar í tvær mínútur.
  • Sara Odden skapaði fimm marktækifæri fyrir Haukaliðið, þar af voru þrjár stoðsendingar. Elín Klara Þorkelsdóttir og Berta Rut Harðarsdóttir sköpuðu þrjú marktækifæri hvor um sig.
  • Berglind Benediktsdóttir var með tvö löglega stopp í vörn Hauka og Sara Oddaen varði eitt skot og Elín Klara var með eitt stopp. Þá er tölfræði varnarmanna Hauka svo að segja upptalin hjá HBStatz.
  • Haukar voru utan vallar í fjórar mínútur.
  • Thea Imani Sturludóttir, Val, var maður leiksins samkvæmt samantekt HBStatz.
  • Alla tölfræði í Olísdeild kvenna er hægt að nálgast hjá HBStatz.
  • Stöðuna og næstu leiki í Olísdeild kvenna er að finna hér.

Samantekt 1. umferðar.

Samantekt 2. umferðar.

Samantekt 4. umferðar.

  • Tveimur leikjum er ólokið í 3. umferð. Þar af leiðandi hefur samantekt ekki ennþá verið birt.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -