- Auglýsing -
- Auglýsing -

Portúgal verður mótherji þriðja stórmótið í röð

Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Íslenska landsliðið í handknattleik karla verður í afar erfiðum riðli í heimsmeistaramótinu í janúar nk. Andstæðingarnir verður Portúgal og Ungverjaland sem voru ekki með íslenska landsliðinu í riðli á EM í janúar. Þetta verður þriðja mótið í röð þar sem Ísland og Portúgal verða saman í riðli.

Fjórða liðið í riðlinum er landslið Suður Kóreu sem oft hefur reynst íslenska landsliðinu óþægur ljár í þúfu í gegnum tíðina.


Portúgal var einnig með íslenska landsliðinu í riðli á HM 2021 í Egyptalandi. Liðin mættust í fyrsta umferð. Portúgal vann með tveggja marka mun, 25:23.
Á EM í janúar sl. snerust hlutverkin við og Ísland vann með fjögurra marka mun, 28:24. Einnig vann íslenska liðið það ungverska í riðlakeppninni, 31:30.


Þrjú lið komast áfram úr hverjum riðli yfir í milliriðla og krossa liðin úr riðli Íslands við liðin í C-riðli en í honum er Svíþjóð, Brasilía, silfurlið væntanlegrar Afríkukeppni og Úrúgvæ.

Leikjadagskrá Íslands í riðlakeppni HM í janúar - leikstaður Kristianstad:
12.janúar: Ísland - Portúgal.
14.janúar: Ísland - Ungverjaland.
16.janúar: Ísland - Suður Kórea.


Riðlaskipting HM karla 2023:

A-riðill:SpánnSvartfj.landChileÍran
B-riðill:FrakklandPóllandS-ArabíaSlóvenía
C-riðill:SvíþjóðBrasilíaAfríka2Úrúgvæ
D-riðill:ÍslandPortúgalUngv.landS-Kórea
E-riðill:ÞýskalandKatarSerbíaAfríka5
F-riðill:NoregurN-MakedóníaArgentínaHolland
G-riðill:Afríka1KróatíaAfríka3Bandaríkin
H-riðill:DanmörkBelgíaBareinAfríka4


Handbolti.is fylgdist með drættinum í Katowice í textalýsingu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -