- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ragnheiður markadrottning – hugsa frekar um nýtingu en fjölda marka

Ragnheiður Júlíusdóttir stórskytta Fram og landsliðskona í handknattleik. Mynd/Fram
- Auglýsing -

Ragnheiður Júlíusdóttir er markadrottning Olísdeildar á þessu keppnistímabili. Hún skoraði 121 mark í 14 leikjum Fram í deildinni en hún missti ekki úr leik. Ragnheiður skoraði að jafnaði 8,6 mörk í leik og alls 38 úr vítaköstum.

„Ég er þokkalega sátt með mína frammistöðu miðað við hvernig þetta tímabil hefur verið. En ef ég hugsa um síðasta tímabil til samanburðar þá finnst mér ég hafa verið í betra leikformi þá heldur en núna og held ég að það sé sökum covid, enda færri leikir spilaðir. Ég er bara fegin að hafa klárað deildina þrátt fyrir að hafa ekki náð markmiðinu, deildarmeistaratitlinum,“ sagði Ragnheiður við handbolta.is í dag.

Þetta er í annað sinn sem Ragnheiður skorar flest mörk í Olísdeildinni. Hún var einnig markahæst leiktíðina 2017/2018 með 147 mörk í 21 leik. Spurð hvort það sé viðbótarmarkmið hennar á hverju tímabili að verða markahæst auk þess að vinna meistaratitla með Fram segir Ragnheiður svo ekki vera.

„Ég viðurkenni að það er aldrei markmið hjá mér að verða markahæst. Ég hugsa meira um nýtinguna í hverjum leik. Ég tek mörg skot í leik og finnst því nýtingin skipta miklu máli. En jú mér hefur alltaf fundist gaman að skora mörk og því er þetta ekki leiðinlegur titill að fá, en hefur aldrei verið markmið hjá mér,“ segir Ragnheiður Júlíusdóttir, leikmaður Fram og landsliðsins og markahæsti leikmaður Olísdeildar kvenna 2021.

Aðeins tvær konur skoruðu yfir 100 mörk í deildinni á keppnistímabilinu.

Eva Björk Davíðsdóttir hefur reynst Stjörnunni vel, skoraði næst flest mörk i Olísdeildinni. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson

Nafn, félag, fjöldi marka/vítaköst, fjöldi leikja:

Ragnheiður Júlíusdóttir, Fram, 121/38 – 14.
Eva Björk Davíðsdóttir, Stjörnunni, 101/43 – 14.
Lovísa Thompson, Val, 90/7 – 14.

Rut Arnfjörð Jónsdóttir hefur reynst hvalreki fyrir deildarmeistara KA/Þórs. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson

Rut Arnfjörð Jónsdóttir, KA/Þór, 87/38 – 14.
Helena Rut Örvarsdóttir, Stjörnunni, 81/0 – 14.

Sara Odden og félagar í Haukum. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson


Sara Odden, Haukum, 75/0 – 14.
Sigríður Hauksdóttir, HK, 69/13 – 14.

Sigríður Hauksdóttir, landsliðskona og leikmaður HK á flugi. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson

Berta Rut Harðardóttir, Haukum, 64/38 – 14.
Ásdís Guðmundsdóttir, KA/Þór, 62/21 – 14.

Ásdís Guðmundsdóttir, leikmaður KA/Þórs og íslenska landsliðsins. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson

Sunna Jónsdóttir, ÍBV, 59/0 – 14.
Birna Berg Haraldsdóttir, ÍBV, 58/1 – 13.

Harpa Valey Gylfadóttir og Birna Berg Haraldsdóttir leikmenn ÍBV. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson

Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Val, 56/20 – 12.
Lena Margrét Valdimarsdóttir, Fram, 56/9 – 14.
Ásta Björt Júlíusdóttir, ÍBV, 55/36 – 14.
Karólína Bæhrenz Lárudóttir, Fram, 53/0 – 12.

Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, ÍBV, 51/0 – 13.
Aldís Ásta Heimisdóttir, KA/Þór, 51/0 – 14.
Rakel Sara Elvarsdóttir, KA/Þór, 51/0 – 14.
Emilía Ósk Steinarsdóttir, FH, 50/15 – 14.

Rakel Sara Elvarsdóttir hefur verið öflug í vörn sem sókn hjá KA/Þór á keppnistímabilinu. Að baki hennar er Lena Margrét Valdimarsdóttir sem skoraði 56 mörk fyrir Fram. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -