- Auglýsing -
- Auglýsing -

Sannfærandi sigur FH-inga í Krikanum

FH-ingurinn Hildur Guðjónsdóttir skorar mark í leik við Selfoss. Mynd/J.L.Long
- Auglýsing -

FH tyllti sér við hlið Gróttu í efsta sæti Grill66-deildar kvenna í kvöld með öruggum sigri á Víkingi í Kaplakrika í kvöld í 2. umferð deildarinnar, 27:24.


FH var einnig þremur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 12:9, og náði mesta sex marka forskoti seint í leiknum. Víkingum tókst að minnka muninn í tvö mörk í síðari hálfleik. Nær komst liðið ekki í kapphlaupi sínu við FH-inga að þessu sinni.


Víkingar eru með tvö stig eftir leikina tvo sem eru að baki.


Mörk FH: Hildur Guðjónsdóttir 6, Ragnhildur Edda Þórðardóttir 5, Ivana Meincke 4, Aníta Björk Valgeirsdóttir 4, Gyða Kristín Ásgeirsdóttir 3, Karen Hrund Logadóttir 2, Birna Íris Helgadóttir 2, Telma Medos 1.
Varin skot: Sigurdís Sjöfn Freysdóttir 13.
Mörk Víkings: Auður Brynja Sölvadóttir 6, Arna Þyrí Ólafsdóttir 6, Ester Inga Ögmundsdóttir 3, Áróra Eir Pálsdóttir 3, Ída Bjarklind Magnúsdóttir 2, Hafdís Shizuka Iura 2, Elín Helga Lárusdóttir 1, Mattý Rós Birgisdóttir 1.
Varin skot: Sara Xiao Reykdal 12.

Staðan í Grill66-deildunum og næstu leikir.

Öll tölfræði leiksins er hjá HBStatz.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -