Unglingalandsliðsmaður HK, Símon Michael Guðjónsson, varð fyrir því óláni að fara úr vinstri axlarlið eftir tíu mínútur í viðureign HK og Fram í 16-liða úrslitum Coca Cola-bikarsins í handknattleik karla í Kórnum í Kópvogi í gær. Ljóst er að hann verður ekki með nýliðum Olísdeildarinnar, HK, um ótiltekinn tíma af þessum sökum.
Guðjón Björnsson, faðir Símons Michaels, sagði við handbolta.is í dag að svo virðist sem ekkert hafi flísast úr beinum í kringum axlarliðinn. Alltént bendi myndir til þess. En hvort liðbönd hafi skaddast verði tíminn að leiða í ljós.
„Við vonum að þetta sé ekki eins slæmt og þetta leit út fyrir að vera,“ sagði Guðjón við handbolta.is í dag.
Símon Michael var í hörkuformi enda nýlega kominn heim eftir að hafa leikið afar vel með U19 ára landsliðinu á Evrópumótinu í Króatíu þar sem íslenska liðið hafnaði í áttunda sæti.