- Auglýsing -
- Auglýsing -

Víkingar verða í Olísdeildinni – Berserkir í Grill66-deildina

Jón Gunnlaugur Viggósson þjálfari karlaliðs Víkings. Mynd/Víkingur
- Auglýsing -

Handknattleikssamband Íslands staðfesti fyrir stundu að Víkingur tekur sæti Kríu í Olísdeild karla í handknattleik á komandi keppnistímabili.
Víkingur hefur ennfremur sent frá sér tilkynningu vegna þess sama. Þar kemur fram að Berserkir, venslalið Víkings, taki sæti Víkinga í Grill66-deildinni.

„Það er mjög mikilvægt svo unnt sé að veita ungum leikmönnum Víkings öflugan vettvang til að öðlast keppnisreynslu í sterkri deild og viðhalda eðlilegri endurnýjun í meistaraflokk Víkings,” segir í tilkynningunni sem birt er í heild sinni hér fyrir neðan.


„Víkingar náðu frábærum árangri síðasta vetur og þó þetta verði klárlega brekka þá tökum við auðvitað áskoruninni. Það að taka þessari áskorun er í takti við þá vegferð sem handknattleiksdeild Víkings er á. Víkingar hafa viljann, getuna og söguna með sér til að vera meðal efstu liða bæði í kvenna og karlaboltanum og þangað stefnum við innan örfárra ára. Bætt aðstaða og umgjörð í Víkinni, styrking á þjálfarateymum, frábært yngri flokka starf sem hefur skilað gríðarlegri fjölgun iðkenda og síðast enn ekki síst styrkingin sem kemur með Safamýrinni mun tryggja það. Áður en langt um líður verða Víkingar ekki bara í toppbaráttunni í fótboltanum heldur handboltanum líka. Stemningin er þannig meðal leikmanna, þjálfara og aðstandenda. Það er gaman að vera Víkingur í dag.

Samhliða þessu þá mun venslalið Víkings, Berserkir væntanlega taka sæti Víkings í Grill 66 deildinni. Það er mjög mikilvægt svo unnt sé að veita ungum leikmönnum Víkings öflugan vettvang til að öðlast keppnisreynslu í sterkri deild og viðhalda eðlilegri endurnýjun í meistaraflokk Víkings.

Fyrirvarinn er lítill en við treystum á að ná að þétta raðirnar bæði innan liðsins sem og í umgjörðinni enda slær Víkingshjartað sterkt ansi víða. Þjálfarar hafa teiknað upp sterkt plan svo nú er bara að vinna í fjármögnun ásamt því að kalla inn og bjóða alla sem vilja velkomna með í ævintýrið,“ segir Björn Einarsson formaður aðalstjórnar Víkings í fréttatilkynningu félagsins.

Tilkynningu HSÍ má lesa hér.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -