- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olísdeild kvenna – 6. umferð, samantekt

Barist um boltann í viðureign KA/Þórs og Aftureldingar. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

Sjötta umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik fór fram á laugardag og á sunnudag. Helstu niðurstöður eru þessar:

HK - Stjarnan 34:28 (16:12).
Mörk HK: Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 10, Jóhanna Margrét Sigurðardóttir 9/3, Elna Ólöf Guðjónsdóttir 4, Karen Kristinsdóttir 3, Sara Katrín Gunnarsdóttir 2, Alexandra Líf Arnarsdóttir 2, Guðrún Erla Bjarnadóttir 2, Þóra María Sigurjónsdóttir 2/2.
Varin skot: Margrét Ýr Björnsdóttir 13/2, 34,2%.
Mörk Stjörnunnar: Lena Margrét Valdimarsdóttir 7, Helena Rut Örvarsdóttir 6, Eva Björk Davíðsdóttir 6/1, Elísabet Gunnarsdóttir 4, Ásthildur Bertha Bjarkadóttir 2, Katla María Magnúsdóttir 1, Stefanía Theodórsdóttir 1, Elena Elísabet Birgisdóttir 1,
Varin skot: Darija Zecevic 5/1, 16,7% – Tinna Húnbjörg Einarsdóttir 1, 10%.
  • Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skapaði fimm marktækifæri fyrir HK-liðið í leiknum við Stjörnuna, þar af voru fjórar stoðsendingar. Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir er komin á fulla ferð eftir barnsburð í sumar. Henni héldu engin bönd í leiknum með 10 mörk úr 11 skotum auk fjögurra skapaðra marktækifæra. Sara Katrín Gunnarsdóttir átti tvær stoðsendingar.
  • Elna Ólöf Guðjónsdóttir átti fimm löglega stopp í vörn HK auk þess sem hún stal boltanum einu sinni af leikmönnum Stjörnunnar. Valgerður Ýr átti fjögur lögleg stopp auk þess að krækja boltanum í tvígang af andstæðingunum. Jóhanna Margrét átti einnig fjögur stopp í vörninni.
  • HK var utan vallar í tvær mínútur.
  • Lena Margrét Valdimarsdóttir lék vel fyrir Stjörnuliðið í Kórnum á laugardaginn. Hún skoraði sjö mörk úr tíu skotum og átti sex sköpuð færi, af því voru fimm stoðsendingar. Helena Rut Örvarsdóttir var á bak við þrjú marktækifæri Stjörnunnar og Eva Björk Davíðsdóttir átti tvær stoðsendingar.
  • Helena Rut náði sex löglegum stoppum í vörninni, varði eitt skot og stal boltanum í tvígang að leikmönnum HK. Eva Björk átti þrjú lögleg stopp.
  • Stjarnan var utan vallar í átta mínútur.
  • Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir, HK, var maður leiksins samkvæmt samantekt HBStatz. Hún var einnig leikmaður 6. umferðar með 9,8 í einkunn af 10 mögulegum.
Fram - Valur 24:25 (14:14).
Mörk Fram: Ragnheiður Júlíusdóttir 5, Þórey Rósa Stefánsdóttir 5, Emma Olsson 4, Karen Knútsdóttir 3, Hildur Þorgeirsdóttir 2, Stella Sigurðardóttir 2, Harpa María Friðgeirsdóttir 2, Hafdís Renötudóttir 1.
Varin skot: Hafdís Renötudóttir 15/2, 37,5%.
Mörk Vals: Mariam Eradze 5, Morgan Marie Þorkelsdóttir 5, Auður Ester Gestsdóttir 4, Thea Imani Sturludóttir 4/1, Lilja Ágústsdóttir 2/1, Hildigunnur Einarsdóttir 2, Elín Rósa Magnúsdóttir 2, Hildur Björnsdóttir 1.
Varin skot: Saga Sif Gíslasdóttir 11, 55% – Sara Sif Helgadóttir 9, 40,9%.
  • Eins og oft áður í leikjum Fram þá var Karen Knútsdóttir á bak við flest marktækifæri liðsins. Hún skapaði sex tækifæri gegn Val, þar af voru þrjár stoðsendingar.
  • Ragnheiður Júlíúsdóttir skapað fjögur færi og Hildur Þorgeirsdóttir þrjú. Skotnýting Ragnheiðar og Karenar var hinsvegar ekki góð. Sú fyrrnefnda skoraði fimm mörk úr 17 skotum og Karen var þrjú mörk í 10 skotum. Munar um minna í jöfnum og spennandi leik.
  • Emma Olsson og Stella Sigurðardóttir voru með fjögur lögleg stopp hvor í vörn Fram. Olsson náði þremur fráköstum í leiknum. Ragnheiður var útsjónarsöm í vörninni og stal boltanum í þrígang af leikmönnum Vals. Hún varði einnig eina skotið sem varnarmenn Fram er skráðir fyrir hjá HBStatz eftir stórleikinn í Safamýri á laugardaginn.
  • Fram var utan vallar í tvær mínútur.
  • Þótt Thea Imani Sturludóttir væri undir ströngu eftirliti varnarmanna Fram nær allan leikinn þá tókst henni að skapa sex marktækifæri, af því voru fjórar stoðsendingar. Morgan Marie Þorkelsdóttir var næst á eftir með fimm sköpuð færi, þar af þrjá stoðsendingar.
  • Thea nýtti fjögur af 11 skotum sínum til að skora og Mariam Eradze nýtti fimm skot af 14.
  • Mariam náði fjórum löglegum stoppum í vörninni og Thea Imani þremur auk þess sem hún stal boltanum einu sinni af leikmönnum Fram. Hildigunnur Einarsdóttir lék sama leikinn einnig einu sinni til viðbótar við að verja eitt skot og ná tveimur löglegum stoppum.
  • Valur var utan vallar í tvær mínútur.
  • Morgan Marie Þorkelsdóttir, Val, var maður leiksins samkvæmt samantekt HBStatz.
KA/Þór - Afturelding 32:26 (16:12).
Mörk KA/Þórs: Rakel Sara Elvarsdóttir 10, Aldís Ásta Heimisdóttir 7, Martha Hermannsdóttir 5/4, Unnur Ómarsdóttir 3, Anna Þyrí Halldórsdóttir 2, Rut Arnfjörð Jónsdóttir 2, Hulda Bryndís Tryggvadóttir 1, Ásdís Guðmundsdóttir 1.
Varin skot: Matea Lonac 8, 30,8% – Sunna Guðrún Pétursdóttir 2/1, 22,2%.
Mörk Aftureldingar: Katrín Helga Davíðsdóttir 9/5, Sylvía Björt Blöndal 3, Ólöf Marín Hlynsdóttir 3, Telma Rut Frímannsdóttir 1, Lovísa Líf Helenudóttir 1, Katrín Hallgrímsdóttir 1, Drífa Garðarsdóttir 1, Susan Ines Gamboa 1, Ragnhildur Hjartardóttir 1.
Varin skot: Eva Dís Sigurðardóttir 3, 11,5% – Tanja Glóey Þrastardóttir 1, 11,1%.
Sylvía Björt Blöndal, leikmaður Aftureldingar. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
  • Aldís Ásta Heimisdóttir skapaði tíu marktækifæri fyrir KA/Þór í leiknum við Aftureldingu, þar af voru sex stoðsendingar. Hulda Bryndís Tryggvadóttir var á bak við níu marktækifæri, þar af voru átta stoðsendingar.
  • Rakel Sara Elvarsdóttir skoraði 10 mörk úr 11 skotum, þar af voru fjögur mörk eftir hraðaupphlaup.
  • Aldís Ásta var einnig aðsópsmikil í vörninni. Hún átti sjö lögleg stopp eins og Anna Þyrí Ólafsdóttir. Rut Arnfjörð Jónsdóttir og Martha Hermannsdóttir náðu sex löglegum stoppum hvor. Martha stal boltanum tvisvar sinnum af leikmönnum Aftureldingar og Hulda Bryndís einu sinni.
  • KA/Þór var utan vallar í tvær mínútur.
  • Katrín Helga Davíðsdóttir og Ólöf Marín Hlynsdóttir voru hvor um sig á bak við fjögur marktækifæri hjá Aftureldingu. Hvor þeirra átti þrjár stoðsendingar. Sylvía Björt Blöndal skapaði þrjú marktækifæri.
  • Ólöf María náði sex löglegum stoppum í vörn Aftureldingar og stal boltanum einu sinni. Sylvía Björt vann einnig boltann einu sinni af leikmönnum KA/Þórs og Katrín Helga fiskaði boltann tvisvar sinnum af andstæðingunum. Sylvía Björt átti fjögur lögleg stopp.
  • Afturelding var utan vallar í fjórar mínútur.
  • Aldís Ásta Heimisdóttir, KA/Þór, var maður leiksins samkvæmt samantekt HBStatz.
Haukar - ÍBV 24:31 (10:17).
Mörk Hauka: Sara Odden 11, Ásta Björt Júlíusdóttir 3/1, Berta Rut Harðardóttir 3, Birta Lind Jóhannsdóttir 3,  Natasja Hammer 2, Elín Klara Þorkelsdóttir 1, Ragnheiður Ragnarsdóttir 1.
Varin skot: Annika Friðheim Petersen 7, 22,6% – Margrét Einarsdóttir 1, 12,5%.
Mörk ÍBV: Harpa Valey Gylfadóttir 8, Marija Jovanovic 7/4, Elísa Elíasdóttir 5, Linda Cardell 5, Sunna Jónsdóttir 3, Karolina Loszowa 2, Ólöf María Stefánsdóttir 1.
Varin skot: Marta Wawrzykowska 15/1, 46,9%.
  • Karen Helga Díönudóttir sneri til baka út á keppnisvöllinn með Haukum í gær eftir meiðsli. Hún skapaði sex marktækifæri fyrir lið sitt, þar af voru fjórar stoðsendingar.
  • Elín Klara Þorkelsdóttir skapað fjögur marktækifæri og Sara Odden þrjú, auk þess að skora nærri helming marka Hauka í leiknum við ÍBV, 11. Reyndar úr 21 tilraun.
  • Natasja Hammer átti sex löglegar stöðvanir í vörn Hauka auk þess sem hún stal boltanum tvisvar sinnum. Karen Helga og Birta Lind Jóhannsdóttir náðu fjórum stoppum hvor. Einnig náði Birta Linda að vinna boltann í þrígang af liði ÍBV.
  • Haukar voru utan vallar í 6 mínútur.
  • Karolina Olszowa var á bak við átta marktækifæri ÍBV í leiknum, þar af voru sjö stoðsendingar. Sunna Jónsdóttir og Marija Jovanovic sköpuðu fimm marktækifæri hvor.
  • Sunna átti þrjá stoðsendingar. Harpa Valey Gylfadóttir skoraði úr átta af níu markskotum sínum.
  • Elísa Elíasdóttir fór mikinn í vörn ÍBV og átti sjö lögleg stopp. Einnig stal hún boltanum einu sinni af leikmönnum Hauka. Sunna, Olszowa og Harpa Valey stálu einu sinni hver boltanum af andstæðingi sínum. Sunna og Jovanovic náðu að verja þrjú skot hvor.
  • ÍBV var utan vallar í fjórar mínútur.
  • Marta Wawrzykowska , ÍBV, var maður leiksins samkvæmt samantekt HBStatz.
  • Stöðuna og næstu leiki í Olísdeild kvenna er að finna hér.
  • Alla tölfræði í Olísdeild kvenna er hægt að nálgast hjá HBStatz.
  • Handboltamælaborð Olísdeilda kvenna og karla þar sem tölfræðin er sett fram á myndrænan hátt. Smellið hér.

Samantekt 1. umferðar.

Samantekt 2. umferðar.

Samantekt 4. umferðar.

Samantekt 5. umferðar.

  • Einum leik er ólokið í 3. umferð. Þar af leiðandi hefur samantekt ekki ennþá verið birt.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -