- Auglýsing -
- Auglýsing -

Verður hugsanlega frá keppni fram á nýtt ár

Oddur Gretarsson við hótel íslenska landsliðsins á HM í Egyptalandi 2021. Mynd/Ívar
- Auglýsing -

Líkur eru á að Oddur Gretarsson, landsliðsmaður og hornamaður þýska liðsins Balingen-Weilstetten, leiki ekki handknattleik fyrr en komið verður inn á næsta ár. Oddur fór í aðgerð í lok júní vegna brjóskeyðingar í hné.


„Um var að ræða fremur litla aðgerð en endurhæfingin tekur langan tíma. Ég vissi það áður en ég fór í aðgerðina,“ sagði Oddur við handbolta.is í gærkvöld þegar leitað var fregna af Akureyringnum vegna þess að hann hefur ekkert tekið þátt í æfingaleikjum Balingen-Weilstetten í aðdraganda keppni í þýsku 1. deildinni sem hefst á morgun.


„Ég verður nokkuð lengi frá af þesum sökum. Vonandi næ ég að spila eitthvað á þessu ári en aðalmarkmiðið er að verða hundrað prósent klár í slaginn eftir vetrarfrí,“ sagði Oddur sem kom inn í íslenska landsliðið á síðasta vetri eftir langa fjarveru. Tók hann m.a. þátt í heimsmeistaramótinu í Egyptalandi í janúar. Gangi eftir að Oddur leiki lítið eða ekkert fyrir ármót verður hann vart með íslenska landsliðinu á Evrópumótinu í Ungverjaland í janúar.


Oddur fann fyrst fyrir óþægindum í öðru hné í desember á síðasta ári. „Einkennin komu og fóru en eftir landsliðsverkefnið í lok apríl og í byrjun maí fann ég að þetta var farið að há mér of mikið,“ sagði Oddur sem ráðfærði sig þá við lækni íslenska landsliðsins, Brynjólf Jónsson, og eins bæklunarlækni í Þýskalandi sem sérhæfir sig í hnjám. Voru þeir sammála um að aðgerði væri besta lausnin, að sögn Odds. Fór Oddur í aðgerð í Þýskalandi síðla í júní.


„Eftir aðgerð tók við endurhæfing. Hún tekur sinn tíma eins og vitað var,“ sagði Oddur Gretarsson við handbolta.is í gærkvöld.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -